Lögmaður fólks sem varð fyrir ofbeldi sem börn á fósturheimilum á vegum hins opinbera segir bótaupphæðir sem boðaðar eru í frumvarpi stjórnvalda um sanngirnisbætur alltof lágar. Frumvarpið valdi vonbrigðum og á því þurfi að gera miklar breytingar.
„Því miður verð ég að segja að þetta frumvarp kemur á óvart á þann hátt að umbjóðendur okkar upplifa mikla vanvirðingu,“ segir Bjarki Heiðar Bjarnason lögmaður.
„Bæði fjárhæðirnar og annað í þessu frumvarpi er engan veginn að mæta þeirra væntingum.“
Bjarki, ásamt Snorra Steini Vidal lögmanni, annast hagsmunagæslu hóps sem telur á sjötta tug manns, og var vistaður á barnsaldri á fósturheimilum á vegum hins opinbera og varð þar fyrir alvarlegu ofbeldi.
Norska kerfið haft til hliðsjónar
Frumvarp stjórnvalda um sanngirnisbætur hefur verið birt í samráðsgátt. Þar kemur fram að bætur verði ákvarðaðar í þremur flokkum – einni milljón, þremur milljónum og fimm milljónum. Tekið sé mið af norska kerfinu, þar sem þakið er 3,2 milljónir íslenskra króna.
Bjarki segir bæturnar of lágar.
„Við erum svo sem ekkert ósammála því að það eigi að miða við norsku leiðina, en viljum þá að sú leið sé rétt túlkuð. Hið opinbera í Noregi, ríki og sveitarfélög, greiddu sameiginlega bætur til þeirra sem höfðu orðið fyrir ofbeldi á hinum ýmsu vistheimilum þar í landi. Og ef maður tekur saman þessar bætur sem fólk gat fengið greitt, bæði frá ríki og sveitarfélagi þar í landi, voru þetta allt upp í og yfir tvo tugi milljóna ef maður núvirðir þá greiðslu miðað við verðlag í dag.“
„Þetta er mjög átakanlegt“
Bjarki og Snorri hafa sent inn umsögn í samráðsgátt og hyggjast óska eftir fundi með forsætisráðherra. Skjólstæðingar þeirra séu í áfalli.
„Ég er búinn að vera að taka á móti grátandi fólki sem er að hringja í mig og lýsa því hvernig því líður. Og þetta er mjög átakanlegt,“ segir Bjarki.
„Þótt þetta snúist ekki um fjárhæðirnar, hversu háar þær verða, þá er fólk að horfa á þetta þannig: hversu miklu máli skipti ég? Hversu mikils virði eru þessi brot sem hafa verið framin gegn mér? Hver er verðmiðinn sem stjórnvöld ætla að setja á það sem ég hef gengið í gegnum og hversu mikið er verið að sýna einhverja sanngirni?“
