Sex grunuð um mansal í tengslum við barnahjónaband

Erlendur maður á þrítugsaldri er meðal sex sem grunuð eru um aðkomu að því að þvinga barn í hjónaband. Öll eru grunuð um mansal og eitt þeirra um kynferðisbrot. Fólkið er allt erlendir ríkisborgarar og frá sama landi.

Þetta staðfestir Alda Hrönn Jóhannsdóttir, aðalsaksóknari hjá lögreglunni á Suðurnesjum.

Foreldrar stúlkunnar meðal handtekinna

Málið er frá 2024. Í gær greindi fréttastofa frá því að fimm hefðu verið handtekin eftir að fullorðinn karl kom til landsins með 15 ára stúlku í nóvember 2024. Meðal þeirra handteknu voru maðurinn, faðir hans og foreldrar stúlkunnar.

Stúlkan var falin barnavernd eftir að hún og maðurinn voru stöðvuð.

Í skýrslum sem voru teknar af stúlkunni kom fram að foreldrar hennar hefðu gift hana manninum. Athöfnin fór fram erlendis.

Stúlkan sagði brúðkaupið hafa verið haldið í húsi á vegum fjölskyldu mannsins og lýsti því að hann hefði haft við hana kynferðismök.

Samskipti við erlend yfirvöld vegna málsins

Maðurinn sem kom með stúlkuna til landsins bjó á Íslandi þegar hann var handtekinn. Lögreglan getur ekki upplýst hvort hann býr hér enn.

Rannsókn stendur yfir í samstarfi við önnur löggæsluyfirvöld í Evrópu í fleiri en einu ríki. Alda Hrönn vill ekki upplýsa hvaða ríki það eru. Hún vill ekki heldur tjá sig um hvort fólkið sé grunað um fleiri glæpi en mansal og kynferðisbrot.

Alda Hrönn segir að nokkur mál þar sem grunur er um barnahjónaband hafi komið á borð lögreglu. „Þetta kemur einstaka sinnum fyrir – sem betur fer ekki oft.“


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.