Tugir mótmæla hækkunum skólagjalda við Háskóla Íslands

Tugir söfnuðust saman við Háskóla Íslands í dag og gengu þaðan á Austurvöll til að mótmæla skólagjöldum sem tekin verða upp fyrir nemendur utan Evrópska efnahagssvæðisins við Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands birti í lok október yfirlit yfir skólagjöldin og nema upphæðirnar frá 1,45 milljónum króna upp í 3,25 milljónir fyrir veturinn fyrir nemendur frá löndum utan EES.

„Nýtilkynnt skólagjöld fyrir þessa nemendur munu hafa áhrif á alla nemendur við Háskóla Íslands, ekki bara alþjóðlega nemendur. Fækkun erlendra nemenda sem orsakast af þessum skólagjöldum mun leiða til þess að mörgum námskeiðum, og jafnvel heilum námsleiðum, verður lokað vegna skorts á nemendum,“ segir í lýsingu við viðburð á samfélagsmiðlum þar sem boðað var til mótmælanna.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.