Stjórn og framkvæmdastjóri Bændasamtakanna fóru nýlega í fundarherferð um landið og hittu bændur og búalið til að fara yfir stöðuna í landbúnaði. Trausti Hjálmarsson, formaður samtakanna, ræddi meðal annars um ágang álftar á kornökrum bænda. Álftin er friðuð og því ekkert hægt að gera þegar hún étur kornið.
„Ég skil mjög vel þessa stöðu sem bændur eru í, hún er erfið og mjög þreytandi og búin að vera lengi og er heldur að versna,” segir Trausti.
Trausti bar skilaboð frá Jóhanni Páli Jóhannssyni umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra á fundi í Félagslundi í Flóa.
„Að þetta væri í góðum farvegi. Hann ætlar að klára þetta verkefni í vetur þannig að við verðum komnir með einhvers konar lausn næsta vor sem mun að öllum líkindum heimila okkur að verja og markmiðið er að við fáum að verja akra okkar og ræktarlönd fyrir ágangi álfta. Þannig að ég ætla að segja að við séum komnir nær í þessu máli en við höfum séð í langan tíma og nú er bara vonandi að orðum fylgi efndir. Við vorum að borða saman hamborgara í síðustu viku og þá lofaði hann mér þessu”.
Og Trausti sagðist á fundinum elska Jóhann Pál ráðherra. Hvað kemur til?
„Hann er bara skemmtilegur og alþýðlegur og alveg í topp tíu í ráðherrahópnum. Hann er vinsæll á meðal bænda, já, já,” segir Trausti formaður.
